Rás 2 tekur þátt í útbreiddasta útvarpsþætti Evrópu í kvöld, þættinum Europe's Biggest Gig sem BBC Radio 1 sér um í samstarfi við EBU. Þátturinn verður sendur út á fimm ríkisstöðvum í Evrópu og mun ná til milljóna hlustenda. Stöðvarnar sem taka þátt eru BBC Radio 1 í Bretlandi, RTE 2FM á Írlandi, RTP Antene 3, WDR 1Live í Þýskalandi og svo Rás 2 á Íslandi.Markmið þáttarins er að kynna það helsta sem er að gerast á tónlistarsviðinu í hverju landi fyrir sig og fær hver stöð 30 mínútur til þess. Þátturinn verður byggður þannig upp að Rás 2 kynnir það sem hefur verið efst á baugi í íslensku tónlistarlífi undanfarið og síðan flytur valinn íslenskur tónlistarmaður eða hljómsveit fjögur lög í beinni útsendingu.Hljómsveitin Spacestation var valin fulltrúi Íslands í ár, en í fyrra var það söng- og