Miðað við áætlaðan rekstrarhagnað atNorth, sem byggir meðal annars á þegar tryggðum samningum við viðskiptavini, þá var fjögurra milljarða dala verðlagningin á félaginu í sölu til CPP og Equinix nokkuð í takti við þá háu verðmargfaldara sem þekkjast í viðskiptum með gagnaver sem geta stækkað frekar og mætt eftirspurn frá tæknifyrirtækjum á sviði gervigreindar.