Vegagerðin hefur lokað Barðastrandarvegi við Raknadalshlíð vegna snjóflóðs sem féll yfir hann í dag. Samkvæmt ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands var gert ráð fyrir að snjóflóðahætta myndi aukast þar.Tilkynnt var um snjóflóðið eftir hádegi í dag. Engar upplýsingar liggja fyrir um að neinn hafi verið í hættu vegna þess.Hægt er að fylgjast með upplýsingum um færð á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is.