Verkalýðsfélagið Hlíf leitar nú starfsfólks hjá Hafnarfjarðarbæ sem hefur ekki fengið greidda desember-eða orlofsuppbót samkvæmt kjarasamningi. Verkalýðsfélagið stefndi bænum vegna vangoldinna persónuuppbóta starfsmanna og vann málið í júní í fyrra. Verkalýðsfélagið segir bæinn hundsa dóminn og ætlar með fleiri slík mál fyrir dómstóla.