Tímasetning árásar á Íran kemur mjög á óvart og erfitt er að segja hvað vakir fyrir Bandaríkjaforseta, segir Magnús Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum Írans.Í Silfrinu í gærkvöld ræddi hann stríðið í Miðausturlöndum, ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur fyrrverandi utanríkisráðherra, og Amid Derayat, sem er íranskur Íslendingur sem hefur búið hér í yfir 30 ár.Magnús Þorkell segir árás á Íran ekki hafa verið í stefnu Repúblikanaflokksins. Donald Trump sé eins og hálfgerður áhrifavaldur sem vill vekja athygli á ákveðnum viðburðum, en réttlætingar fyrir stríðinu séu mjög mótsagnakenndar.Sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda segir erfitt að ráða í Bandaríkjaforseta og ákvörðun hans um árásir á Íran hafi verið mjög sérkennileg. Írani á Íslandi segir Bandaríkin vanmeta Íran.Ingibjör