„Þetta var traustasta sambandið sem við áttum en nú eigum við í sterku sambandi við önnur ríki Evrópu,“ sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í viðtali við breska blaðið The Sun. Þar var hann spurður út í samband Bretlands og Bandaríkjanna eftir að Bretar neituðu að heimila Bandaríkjamönnum að nota breskar herstöðvar til árása á Íran.Löngum hefur verið rætt um sérstakt samband þessara tveggja bandalagsríkja.Trump sagði í viðtalinu við The Sun að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefði ekki verið hjálplegur í aðdraganda árásanna á Íran. „Ég átti ekki von á því, ég hélt að ég myndi aldrei upplifa þetta af hálfu Breta. Við elskum Bretland.“Heimurinn er breyttur og það sama á við um samband ríkjanna, sagði Trump. „Sambandið er mjög frábrugðið því sem við höfum áður átt við land yk