Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ófært á mörgum helstu vegum austantil

Óveður gærdagsins á austanverðu landinu er gengið yfir en afleiðingarnar blasa enn við því flestir helstu vegir frá Höfn á Hornafirði og norður um eru lokaðir eða ófærir. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er staðan á Norðausturlandi þannig að vegir eru lokaðir um Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Vopnafjarðarheiði og Hófaskarð. Ófært er á Hólasandi, Kelduhverfi, Hólaheiði og milli Þórshafnar og Vopnafjarðar. Snjóþekja eða hálka er á flestum öðrum leiðum. Á Austurlandi eru vegirnir um Fjarðarheiði og frá Djúpavogi að Höfn lokaðir. Þæfingur er á Fagradal ásamt skafrenningi og einbreiðum köflum; þæfingur er í Norðfirði. Ófært er víða, meðal annars um Vatnsskarð eystra, Öxi og Breiðdalsheiði. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði og Ólafsfjarðarvegi og Víkurskarði hefur verið lokað vegna snjóa. Annars st
Ófært á mörgum helstu vegum austantil

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta