Fjórði dagur stríðs Bandaríkjanna og Ísraels við Íran er runninn upp. Átökin hafa breiðst út til Líbanon en Ísraelar og Hisbollah-vígasamtökin skiptust á skotum þar í nótt. Ísraelsher gerði harðar árásir á Tehran og Beirút í nótt og snemma í morgun og hefur gefið út rýmingarviðvaranir fyrir hluta Suður-Líbanon.