Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ samþykktur

Gylfi Þór Gylfason lögreglumaður leiðir lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 26. maí. Framboðslistinn var samþykktur á félagsfundi flokksins í kvöld.Í 2. sæti listans er Finney Rakel Árnadóttir aðstoðarskólastjóri. Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir nemi er í 3. sæti listans. 4. sætið skipar Guðmundur Ólafsson sjávarútvegsfræðingur og í því 5. er Sigurður Hreinsson véliðnfræðingur.Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni segir að jafnaðarmenn á Ísafirði séu mættir til leiks.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ samþykktur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta