Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir innleiðingu refsiákvæða fyrir launaþjófnað skorta á Íslandi. Hún segir margt sammerkt með þeim aðferðum sem notaðar séu við slíkt athæfi hér á landi og á öðrum Norðurlöndum.Í ársbyrjun 2022 varð Noregur fyrsta Evrópulandið til að innleiða sérstök refsiákvæði fyrir launaþjófnað. Verknaðurinn er í dag skilgreindur sem refsivert efnahagsbrot þar í landi og getur varðað allt að sex ára fangelsi.Rætt var við Sólveigu Önnu og Lars Christian Fjeldstad, lögfræðing norska alþýðusambandsins LO, um launaþjófnað í Kastljósi í kvöld.Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist hafa kallað eftir innleiðingu refsiákvæða fyrir launaþjófnað á Íslandi líkt og þekkist í Noregi. Hún segir slíka glæpi helst bitna á aðfluttu fólki og fólki í láglaunastörfu