Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Viðreisn býður fram á Ísafirði í fyrsta sinn

Gylfi Ólafsson, sem hefur verið formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, leiðir lista Viðreisnar í Ísafjarðarbæ í sveitarstjórnarkosningum í vor. Þetta er í fyrsta skipti sem Viðreisn býður fram í Ísafjarðarbæ.Sif Huld Albertsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Sjótækni, er í 2. sæti listans. Þá er Magnús Einar Magnússon, skrifstofustjóri, stálsmíðameistari og bæjarfulltrúi í 3. sæti hans.„Þetta kjörtímabil hefur litast af mikilli áherslu á að koma fjármálum sveitarfélagsins á þokkalegt ról, bæta húsnæði og íþróttaaðstöðu sveitarfélagsins og hugsa um ýmis atvinnumál. Komandi kjörtímabil þarf einkennast af áherslu á skólamál á öllum skólastigum, átak í skipulagsmálum og að koma húsbyggingum á betra skrið,“ er haft eftir Gylfa Ólafssyni í fréttatilkynningu frá Viðreisn.
Viðreisn býður fram á Ísafirði í fyrsta sinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta