Svartabylur geisaði á Austfjörðum í dag og var fólki ráðlagt að halda sig innandyra.Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs tóku gildi í morgun á austanverðu landinu og í hádeginu tóku appelsínugular viðvaranir gildi á Austurlandi og Austfjörðum.Ferðamenn sátu fastir og björgunarsveitir stóðu í ströngu við að hjálpa ökumönnum í vanda og flytja heilbrigðisstarfsfólk til vinnu.„Þetta er alvöru. Góðan og blessaðan. Við erum að reyna að komast til vinnu,“ segir Helga Björg Eiríksdóttir, íbúi á Borgarfirði og starfsmaður harðfiskverkunarinnar Sporðs.Fréttastofa náði tali af Austfirðingum og ferðamönnum sem áttu erfitt með að komast leiðar sinnar vegna vinds og snjókomu fyrir austan í dag.