Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bilun í rafrænu prófakerfi samræmdra prófa ekki haft mikil áhrif

Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu segir hafa verið viðbúið að tæknilegir örðugleikar gætu komið upp í rafrænu prófakerfi fyrir grunnskólanema sem opnað var í morgun. Bilunin hafi sem betur fer ekki haft áhrif á marga skóla. HÆGAGANGUR Í RAFRÆNU PRÓFAKERFI Nemendur í fjórða, sjötta og níunda bekk þreyta samræmd próf á rafrænu formi í þessum mánuði, í fyrsta sinn frá 2021. Tæknilegir örðugleikar komu upp í fyrirlagningu prófanna í morgun og vörðu til hádegis. Þórdís Jóna Sigurðardóttir er forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.„Það kom upp smá hægagangur í prófakerfinu í upphafi fyrirlagnar í morgun, þegar fyrstu skólarnir fóru inn í kerfið. En við greindum þetta auðvitað fljótt og vel hvað það var sem olli þessu og málið hefur nú verið leyst og kerfið er komið í eð
Bilun í rafrænu prófakerfi samræmdra prófa ekki haft mikil áhrif

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta