Fíkniefnamál halda áfram að vera meðal stærstu mála lögregluyfirvalda á Íslandi. Þeim hefur fækkað hvað varðar vörslu og neyslu en málum sem varða sölu, dreifingu og inn- og útflutning hefur fjölgað.Þetta kemur fram í nýrri skýrslu embættis greiningardeildar ríkislögreglustjóra um innra öryggi Íslands 2026. Markmið skýrslunnar, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi, er að veita upplýsingar um stöðu Íslands í kjölfar þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á umhverfi öryggismála í Evrópu undanfarin ár. BREYTINGAR Á ÖRYGGISUMHVERFI LANDSINS Í skýrslunni er fjallað um innra öryggi Íslands út frá sjónarhóli löggæslu, með tilliti til verkefna og ábyrgðarsviða sem heyra undir embætti ríkislögreglustjóra. Þar segir að ytra öryggisumhverfi landsins hafi tekið breytingum undanfarin ár sem h