Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir stöðuna á vinnumarkaði óvenjulega og erfiða viðureignar. Á meðan atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara sé um 10 prósent mælist atvinnuleysi meðal íslenskra ríkisborgara nánast ekkert.Öll spjót beindust að forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Hún var þráspurð út í aðgerðir í efnahagsmálum í ljósi þrálátrar verðbólgu og aukins atvinnuleysis. Verðbólga stóð í stað í 5,2 prósentum milli janúar og febrúar en sérstakar áhyggjur vakti á hversu breiðum grunni verðhækkanir eru sem bendir til þess að verðbólgan verði þrálátari en vonir stóðu til. Atvinnuleysi mælist 7,3 prósent hjá Hagstofunni og hefur ekki mælst meira síðan í covid-faraldrinum. SKÓFLA Í STAÐ SLEGGJU Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins,