Herjólfur siglir til og frá Þorlákshöfn áfram næstu vikur. Bilun í dýpkunarskipi, sem unnið hefur að dýpkun Landeyjahafnar, gerir það að verkum að stöðva þarf þær framkvæmdir.Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að unnið sé að því að fá varahluti erlendis frá og áætlað að viðgerð taki um 10-20 daga. Á meðan er ekki hægt að vinna að dýpkun Landeyjahafnar. Þar til annað verður tilkynnt, siglir Herjólfur um Þorlákshöfn. Herjólfur siglir til og frá Þorlákshöfn á næstunni.Vegagerðin