Starfsmenn Úrvals Útsýnar aðstoðuðu viðskiptavini um helgina vegna ferðalaga til og frá Mið-Austurlöndum. Forstjórinn segir ekki hafa þurft að fella niður pakkaferðir.Fjölda flugvalla í Miðausturlöndum hefur verið lokað vegna stríðsins sem þar geisar. Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrvals Útsýnar, segir mikla vinnu hafa staðið yfir um helgina. Þó hafi ekki þurft að aflýsa pakkaferðum.„Við aðstoðum okkar farþega með ný flug í samráði við flugfélögin sem eru að fella niður flugin. Við erum ekki eingöngu að selja pakkaferðir heldur líka flug, fólk er að fara vítt og breitt þar sem þessar niðurfellingar á ferðum hafa áhrif. Þannig við erum bara til aðstoðar fyrir okkar farþega, eftir því sem fram vindur.“ ÓVÍST HVERSU MARGIR VIÐSKIPTAVINIR VERÐA FYRIR ÁHRIFUM Þórunn segir flugfélögin vinna