Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hríðarveðurs á Suðurlandi og við Faxaflóa frá klukkan níu í fyrramálið til eitt eftir hádegi. Hvöss suðaustanátt með snjókomu og skafrenningi verður þá ríkjandi. Lítið skyggni verður á köflum, einkum á Hellisheiði, í Þrengslum, á Kjalarnesi og Snæfellsnesi. Hætt er við að samgöngur fari úr skorðum. Vindhviður geta farið í kringum 30 metra á sekúndu við fjöll við Faxaflóa.Gular viðvaranir morgundagsins.Veðurstofa Íslands