„Það sem mér finnst verst í þessu öllu saman er að það hefði verið hægt að grípa inn í.“ Þetta segir hálfbróðir Margrétar Höllu Hansdóttur Löf sem var dæmd fyrir að bana föður þeirra í Súlunesi í apríl 2025. Systkinin eru samfeðra en ólust ekki upp saman.Í síðari þætti Vítahrings Margrétar Löf á Rás 1 lýsir hann sinni hlið á málinu. Hann kýs að koma ekki fram undir nafni. Í þáttunum er reynt að varpa ljósi á hvers vegna málin þróuðust á versta veg hjá fjölskyldunni í Súlunesi.Bróðir Margrétar er ósáttur við að heilbrigiðsstarfsfólk hafi ekki aðhafst meira þegar það fór að gruna að faðir hans sætti heimilisofbeldi. Hans Löf leitaði sér ítrekað læknisaðstoðar vegna áverka eftir Margréti dagana fyrir manndrápið. Bróðir Margrétar segist hafa verið grunlaus um ofbeldið sem viðgekkst á heimili þ