Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Betri sveit kynnir framboðslista

Nýtt framboð, Betri sveit - fyrir okkur öll, hefur birt framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Framboðið er sprottið upp úr hópi sumarbústaðaeigenda. Deilur hafa verið í sveitarfélaginu um þjónustu við íbúa í frístundabyggð.Andrés Bertelsen rekstrarstjóri leiðir lista Betri sveitar. Í framboðstilkynningu segir að samstaða og virðing séu lykilforsendur þess að sveitarfélag verði góður staður til að búa í. Framboðið segir að fólk finni til öryggis og ábyrgðar þegar íbúar, félagasamtök, atvinnulíf og stjórnvöld vinni saman að sameiginlegum markmiðum.
Betri sveit kynnir framboðslista

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta