Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Get þá í versta falli skriðið heim“

Það er ekkert ferðaveður um landið austanvert, segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur um óveðrið sem gengur yfir á Austurlandi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Norðausturlandi.Víða er orðið bálhvasst og veðrið nær ekki hámarki fyrr en seinnipartinn, segir hann.„Það á enn eftir að bæta í fyrir austan virðist vera og þetta á eftir að standa langt fram eftir kvöldi. Það fer varla að draga neitt úr veðurhæðinni fyrr en eftir tíu, ellefu í kvöld og verður jafnvel hvasst fram á nóttina.“Misjafnt er hvernig skólahaldi hefur verið háttað. Skólum hefur verið lokað í Vopnafirði og Fjarðabyggð og leikskóla á Djúpavogi var lokað í hádeginu. Skólahald í Brúarási var fellt niður og sömuleiðis skólaakstur í dreifbýli. Börn á Egilsstöðum mættu í skólann í morgun.Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri í
„Get þá í versta falli skriðið heim“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta