Bandaríkin ætla að senda sjúkraskip til Grænlands, segir erindreki Bandaríkjanna, þrátt fyrir að dönsk og grænlensk stjórnvöld hafi afþakkað heilbrigðisþjónustu. Sérfræðingar segja að skipið myndi skapa fleiri vandamál en það myndi leysa.Bandaríkjaforseti sagði fyrir rúmri viku að sjúkraskip væri á leið til Grænlands til að sinna bágstöddum. Hann sagði að skipinu væri ætlað að tryggja heilbrigðisþjónusu fyrir „fjölda fólks sem liggur sjúkt án aðhlynningar“, eins og hann orðaði það. „Það er á leiðinni!!!“Dönsk og grænlensk stjórnvöld afþökkuðu þetta, því lögum samkvæmt eiga allir Grænlendingar rétt á gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu. Jeff Landry, erindreki Bandaríkjanna, furðaði sig á viðbrögðum þeirra; og sagði Jens Frederik-Nielsen, formanni landstjórnar Grænlands, að skammast sín, í fær