Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag.