Tollgæslan tók þátt í alþjóðlegum aðgerðum 30 ríkja á vegum Europol þar sem var skorin upp herör gegn smygli á og viðskiptum með ólögleg lyf. Aðgerðirnar leiddu til þess að lagt var hald á lyf fyrir 33 milljónir evra, 3.354 einstaklingar ákærðir og 43 skipulagðir glæpahópar rannsakaðir. Lyfjastofnun liðsinnti Tollgæslunni við aðgerðirnar.Fréttastofa RÚV greindi frá því í síðustu viku að peptíðar gengju kaupum og sölum á samfélagsmiðlum og að unglingar notuðu þau til að líta betur út. Einn leitaði á eitrunarmiðstöð vegna afleiðinganna.Í tilkynningum frá Tollgæslunni og Lyfjastofnun í dag kemur fram að lagt hefur verið hald á 5.000 glös með ólöglegum peptíðum hér á landi. Allt efnið kom frá Kína og var sent hingað með pósti og hraðsendingum.Tollurinn hefur lagt hald á 34 mismunandi tegundir