„Það er eins og við séum í smá hjónabandi. Við erum mjög nánar og búnar að spila mikið saman,“ segir Björk Níelsdóttir sópransöngkona um Þóru Margréti Sveinsdóttur víóluleikara. Saman mynda þær tvíeykið Dúplum Dúó en þær eru einnig hluti af kammersveitinni Cauda Collective. „Við vorum vinir fyrst og svo þurftum við að læra að vera kollegar líka, það tók smá tíma.“Þær stöllur halda tónleika í Salnum á sunnudaginn sem kallast Hugleiðingar um jökulvatn og ást og gefa út plötu á næstu dögum ásamt Cauda Collective. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræddi við þær Björk og Þóru í Segðu mér á Rás 1. FYRIR FRAM ÁKVEÐIÐ HJÓNABAND Björk og Þóra kynntust í tónlistarháskólanum í Amsterdam fyrir rúmum áratugi. Þóra hafði þá ferðast með Sigur Rós þar sem hún frétti af Björk. „Allar vinkonur Bjarkar voru m