Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Spáð brjáluðu veðri fyrir austan

Stórhríð skellur á austanverðu landinu í dag. Veðurspáin er svo slæm að lögreglan á Austurlandi hvatti fólk í gær til að halda sig heima í dag ef það þyrfti ekki að vera á ferðinni.Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs á austanverðu landinu taka gildi með morgninum og upp úr hádegi taka gildi appelsínugular viðvaranir á Austurlandi og Austfjörðum vegna stórhríðar. Þá er spáð 20 til 28 metrum á sekúndu, snjókomu og skafrenningi. Ekkert ferðaveður verður á þessum slóðum og hætta er á foktjóni.Öllu rólegra verður á vestanverðu landinu, hægari vindur og sunnan heiða verður bjartviðri.Frost verður á bilinu eitt til tíu stig í dag.Veðurspáin er svohljóðandi:Gengur í norðvestan átján til 28 metra á sekúndu í dag, hvassast á Austfjörðum, en hægari vindur á vesturhelmingi landsins. Snjókoma og skafre
Spáð brjáluðu veðri fyrir austan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta