Prófessor í Mið-Austurlandafræðum segir óljóst hvað vaki fyrir Bandaríkjaforseta með aðgerðum Bandaríkjanna og Ísraels í Íran. Enn meiri þungi er í átökunum þrátt fyrir að ríkin hafi ráðið æðsta klerk Íran af dögum í gær. Vísbendingar séu um að þetta verði jafnstórt verkefni og innrásin í Írak 2003. NÁNAST BARA STURLUN Fyrirætlanir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að fara inn í Íran með þessum hætti og steypa stjórnvöldum af stalli, eru ekki líklegar til að ganga að mati Magnúsar Þorkels Bernharðssonar, prófessors í Mið-Austurlandafræðum.„Það er ekki líklegt að það að ráðast með þessum hætti og taka af lífi helsta stjórnmálamann landsins, leiði til jákvæðs árangurs. Vegna þess að Íranir eru mjög samstillt þjóð og þetta er ekki þeirra leið til þess að ná fram þessum breytingum.“Ekki h