Marzieh Amiri hefur búið á Íslandi í um þrjú ár og lokið MA í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Hún segir fregnir frá heimalandinu vekja ótta um fjölskyldu og vini í Íran en á sama tíma vekja von.Þó svo að tilhugsunin um stríð í heimalandinu sé ógnvekjandi telur hún innrásina hafa verið nauðsynlega, til að koma klerkastjórninni frá. „Ég held að núna sé tíminn til að losa okkur við þessi grimmu stjórnvöld,“ segir Marzieh.Íranir á Íslandi fögnuðu í gær þegar fregnir bárust af falli Khameinis. Marzieh segist ekki vita hver viðbrögðin voru í heimalandinu, fyrir utan það sem hún hefur lesið eða séð í fréttum. „Þeir lokuðu internetinu, lokuðu fyrir símann, við náum ekki í þau, þannig að auðvitað er ég áhyggjufull,“ segir Marzieh.