Átján ára gamall hefur hann farið fimmtán sinnum í innlögn á BUGL, legið yfir hundrað nætur á barna- og unglingageðdeild, verið í neyðarvistun á Stuðlum, búið í sérhæfðu úrræði, fallið sjálfkrafa út úr barnaverndarkerfinu og tvisvar sinnum legið milli lífs og dauða á gjörgæslu. Hann segir íslenska kerfið hafa brugðist ungmennum með fjölþættan vanda, og vill róttækar breytingar.