Hekla Sól Hauksdóttir fer á göngudeild SÁÁ á Vogi á mánaðar fresti til að fá sprautu með lyfinu Buvidal við ópíóíðafíkn. Hún hefur verið edrú í hátt í fjögur ár og fengið lyfið allan þann tíma.Um síðustu mánaðamót tók nýr samningur SÁÁ við Sjúkratryggingar gildi og nú þarf að greiða fyrir komu og læknisviðtal til að fá lyfið.„Ég hefði í rauninni ekki getað sótt þessa meðferð ef ég hefði þurft að borga fyrir hana eða vitað að ég þyrfti að borga fyrir hana,“ segir Hekla.Gjaldið er fimm þúsund krónur og Rótin, sem er félag um málefni fólks með fíknivanda, hefur skorað á heilbrigðisráðherra að falla frá því, og að þessi þjónusta verði veitt á öðrum stað en Vogi – hún þurfi að vera meira miðsvæðis.Ég hefði aldrei orðið edrú ef ég hefði ekki fengið þessa meðferð, segir ung kona sem fær viðhaldsm