Belarúski stjórnarandstæðingurinn Maria Kolensnikova segir mikilvægt að rjúfa einangrun Belarús, því einangrun landsins gagnist aðeins Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Kolensnkikova afplánaði 5 ára dóm sem pólitískur fangi í Belarús, en var látin laus í desember síðastliðnum.Maria Kolensnikova er ein þriggja kvenna frá Belarús sem leiddu mótmæli gegn stjórnvöldum í landinu fyrir sex árum. María ásamt Veronika Tsepkalo og Sviatlana Tsikhanouskaya voru áberandi í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar árið 2020, eftir að eiginmaður Sviatlana og forsetaframbjóðandinn Sergei Tikanovsky, var handtekinn og dæmdur í fangelsi.Sviatlana bauð sig fram á móti sitjandi forseta, Aleksander Lukashenko, sem var lýstur sigurvegari kosninganna. Í kjölfarið brutust út ein mestu mótmæli í landinu hin s