Áhrif þess að myndir frá Íslandi birtast í sjónvarpsþáttum eða öðru afþreyingarefni eru ótvíræð, segir ferðamálastjóri. Fjöldi þeirra sem leituðu að Háafossi á netinu jókst um 5.000% eftir að fossinn birtist í lokaþætti Stranger Things.Fram kom í fréttum RÚV í gær að vinsældir Háafoss í Þjórsárdal hafi stóraukist eftir að fossinn birtist í lokaþætti þáttaraðarinnar Stranger Things um áramótin. Meira en 100 milljónir horfðu á þáttinn á Netflix. Fjöldi þeirra sem gúggluðu Háafoss jókst um fimm þúsund prósent eftir að þátturinn var sýndur.Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri segir ljóst að birting í slíku afþreyingarefni sé verðmæt fyrir ferðaþjónustu á Íslandi. „Það hefur mikil áhrif,“ segir Arnar Már. Skoðanakannanir Ferðamálastofu sýni þetta.„Við hjá Ferðamálastofu höfum verið að reyna að sk