Það viðrar vel til skíðaiðkunar í dag – og fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Bláfjöll í bliðviðrinu. Einar Bjarnason, rekstrarstjóri Bláfjalla, segir augljóst að fólk nýtir hvert tækifæri sem gefst til að skella sér í fjöllin eftir snjólítinn vetur.„Já, það er óhætt að segja það,“ segir hann. „Hér voru um 3300 manns í gær og við erum komin í 4500 í dag.“„Það er náttúrulega miklu betra veður, það er búin að vera sól hérna í allan dag svo þetta er búinn að vera geggjaður dagur,“ segir Einar. Umferðateppa myndaðist í kringum svæðið vegna aðsóknar. Einar segir hana þó hafa verið nokkuð fljóta að leysast.Það viðrar vel til skíðaiðkunar í dag og fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Bláfjöll í bliðviðrinu. Rekstrarstjóri Bláfjalla segir að skíðað hafi verið í öllum hlíðum fjallsins þrátt fyrir a