Mikil endurnýjun er á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Reynsluboltar úr pólitík í bland við nýgræðinga skipa efstu sætin. Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins í borginni, segir mjög marga hafa viljað vera í efstu sætum listans. „Þannig að mjög fáir fengu það sem þeir óskuðu eftir.“Í þriðja sæti listans er enginn nýliði. „Við vitum að skipulags- og umferðarmál eru í ólestri. Við vitum að skólunum gengur illa og enn meira leikskólunum. Við teljum, og erum sannfærð um það, að við getum gert betur. Það er eiginlega ekki hægt að gera verr,“ segir Brynjar Níelsson. Hann er fullviss um að verða öðruvísi borgarfulltrúi en alþingismaður. „Ég er ekki viss um að ég verði eins leiðinlegur. En þó er ekki alveg á vísan að róa með það.“