Utanríkisráðherra segir ekki beint eftirsjá eftir af stjórnarháttum klerkastjórnarinnar í Íran. Hún hefur áhyggjur af enn frekari stigmögnun átakanna. ÍSLENDINGAR VERIÐ SKÝR OG LEIÐANDI RÖDD Í BARÁTTUNNI FYRIR MANNRÉTTINDUM Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir klerkastjórnina í Íran hafa með framgöngu sinni stuðlað að miklum ófriði og öfgum í heimshlutanum. Hún var í viðtali í hádegisfréttum.„Þetta hefur verið uppeldisstöð fyrir hryðjuverkahópa svo ekki sé talað um þetta víðtæka ofbeldi sem klerkastjórnin og Khamenei hefur beitt sína eigin borgara og drepið tugi þúsunda. Þannig að það er ekki beint eftirsjá eftir þessum stjórnarháttum eða fyrir hvað þessi stjórn hefur staðið.“Hún hefur áhyggjur af þeirri hættu að þessi átök stigmagnist enn frekar sem og stigmögnun át