Hinsegin vika hefst í Sveitarfélaginu Árborg á morgun, mánudaginn 2. mars og stendur til laugardagsins 7. mars. Með vikunni vill sveitarfélagið leggja áherslu á mikilvægi mannréttinda, virðingar og jafnréttis, auk þess að skapa vettvang þar sem fjölbreyttar raddir og lífsskoðanir fá að heyrast og njóta virðingar.