Dómsmálaráðherra segir ótímabært að segja hvort Helga Jenssyni, lögreglustjóra á Vestfjörðum, verði vikið frá störfum eftir að kvartað var undan hegðun hans á þorrablóti Flateyringa – Stútungi – fyrr í mánuðinum. Kvartanirnar sneru annars vegar að kynferðislegri áreitni og hins vegar að því að hann hefði ráðist líkamlega að manni á þorrablótinu.Samkvæmt kvörtun sem send var nefnd um eftirlit með lögreglu (NEL), og fréttastofa hefur undir höndum, vísaði Helgi minnst tvívegis til valds embættis síns.Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir málið til skoðunar innan ráðuneytisins en vill að öðru leyti lítið gefa upp að svo stöddu. „Á meðan að málið er nýkomið og menn rétt farnir að glöggva sig á því þá er ekki mikið hægt að segja annað. En ég get staðfest það að þetta mál er ti