Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Þú vilt að börnin þín stækki en samt viltu líka bara að þau séu lítil í fangi endalaust“

Litla svið Þjóðleikhússins umbreytist næstu mánuði í töfrandi skynheim fyrir yngstu áhorfendurna þegar leikhópurinn Miðnætti frumsýnir glænýja íslenska barnasýningu með frumsaminni tónlist. Verkið heitir Hreiðrið og er leikstýrt af Agnesi Wild sem nýlega leikstýrði Línu Langsokk og Blómunum á þakinu.Sviðið hefur verið útbúið sérstaklega fyrir litla áhorfendur sem geta skriðið öruggir um mjúkt og litríkt rýmið. Í sýningunni eru fá orð notuð og notast er við tákn með tali. Sýningin hentar því vel börnum með ólík móðurmál og heyrnarskertum börnum.Agnes leit við í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 og sagði betur frá verkinu. „Það var einn fjögurra mánaða hjá okkur í gær og honum fannst svo gaman. Hann fer náttúrlega ekki heim og segir: Ég sá svo skemmtilegt leikhús. En það er upplifunin og skynjunin,“
„Þú vilt að börnin þín stækki en samt viltu líka bara að þau séu lítil í fangi endalaust“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta