Í ungmennabókinni Sólgosi fer rafmagnið af í marga mánuði og landsmenn þurfa að hafa sig alla við til að lifa af. Arndís sagði frá bókinni í Hvað ertu að lesa? á Rás 1. VISSI AÐ EF HÚN MYNDI SKRIFA STÓRHÖRMUNGABÓK YRÐI HÚN UM ÞETTA Fyrir allnokkrum árum las Arndís fyrst um fyrirbærið sólgos. Frá sólinni berst sterk rafsegulgeislun sem við sjáum til dæmis í norðurljósum. Ef sólin skvettir frá sér mjög miklu efni sem lendir á jörðinni kallast það sólgos og þá geta orðið rafmagnstruflanir. > En það sem ég er að ímynda mér í Sólgosi er miklu, miklu stærri viðburður. Sem að er tæknilega séð ekki ómögulegur, kannski ekki líklegur.“ Stærsta sólgos sem vitað er um var árið 1859. Þá var heimurinn hins vegar ekki jafn háður rafmagni og hann er núna. Greinin sem Arndís las fjallaði um hvað myndi