Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Æðstiklerkur Íran drepinn í árásum Bandaríkjanna og Ísrael

Æðstiklerkur Írans Ali Khamenei var drepinn í árásum Bandaríkjanna og Ísrael og Íran sem hófust að morgni þann 28. febrúar.Aðsetur Ali Khameini í miðborg Teheran, höfuðborg Íran, var eitt af fyrstu skotmörkum árásanna. Talsverð óvissa var fram eftir degi í gær og tilkynntu íranskir fjölmiðlar að Khameini myndi koma fyrir þjóðina í ávarpi en allt kom fyrir ekki.Írönsku fjölmiðlarnir Tasnim og Fars staðfestu svo andlát Khameini í nótt. Þá var einnig tilkynnt að dóttir Khameini, tengdasonur og barnabarn hefðu verið drepin í árásunum.Fjöldi annarra hátt settra leiðtoga landsins voru einnig felldir í árásunum í gær, þar á meðal Aziz Nasirzadeh, varnarmálaráðherra Íran, Mohammad Pakpour, yfirmaður byltingarvarðarins, hershöfðinginn Abdolrahim Mousavi og Ali Shamkani, öryggisráðgjafi Khameini.
Æðstiklerkur Íran drepinn í árásum Bandaríkjanna og Ísrael

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta