Fjögur létust þegar sprengja sprakk í túnjaðrinum á Ási í Fellum, öll úr sömu fjölskyldu. Lítið sem ekkert hefur verið fjallað um þennan harmleik og sennilega er skýringin það mikla áfall sem fjölskyldan varð fyrir. Harðduglegt fólk sem hreinlega varð að halda áfram með lífið því bústörfin biðu ekki. Engin áfallahjálp var í boði fyrir eftirlifendur en slysið þjappaði ábúendum enn frekar saman. Árið 1962 fluttu þau öll til Egilsstaða og við það fór jörðin í eyði. Síðan þá hefur enginn verið í fastri búsetu að Ási.Þegar slysið varð á Ási fyrir 80 árum var þar tvíbýli bræðranna Guttorms og Bergsteins Brynjólfssona. Talið er fullvíst að dætur Guttorms, Margrét Nanna og Droplaug, ásamt Ragnheiði dóttur Bergsteins, hafi fundið ósprungna sprengju frá tímum hernáms Breta á Austurlandi og borið han