Nurul Amin Shah Alam fannst látinn 24. febrúar í Norður-New York ríki nokkrum dögum eftir að honum var sleppt úr haldi Tolla- og landamærastofnunar Bandaríkjanna. Í frétt breska ríkisútvarpsins BBC segir að starfsmenn Tolla- og landamærastofnunar Bandaríkjanna hafi keyrt hann úr varðhaldi að kaffihúsi sem var í margra kílómetra fjarlægð frá heimili hans í Buffalo 19. febrúar. Ekki er vitað hver dánarorsök mannsins var en veður var kalt þennan dag.Shah Alam hafði verið í gæsluvarðhaldi lögreglu í tæpt ár vegna líkamsárásar og vopnaburðar vegna atviks þar sem tveir lögreglumenn slösuðust, samkvæmt lögreglunni. Hann var síðan látinn laus gegn tryggingu eftir að hafa játað á sig sök. Hann var síðan færður aftur í varðhald, í þetta sinn af Tolla- og landamærastofnun Bandaríkjanna vegna þess að