Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Dalamenn vígja íþróttamiðstöð

Dalamenn vígðu nýja íþróttamiðstöð í Búðardal í dag. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, klippti á borða og séra Snævar Jón Andrésson blessaði húsið.Í nýju íþróttamiðstöðinni er íþróttahús og líkamsræktaraðstaða en líka sundlaug, gufubað og heitir pottar. Þetta er í fyrsta sinn sem það er sundlaug í Búðardal. Hingað til hafa Dalamenn æft íþróttir og synt í Laugum í Sælingsdal sem er í 20 mínútna aksturs fjarlægð frá Búðardal.Íþróttafélögin í Búðardal standa fyrir ýmisskonar íþróttaiðkun. Til viðbótar við boltaíþróttirnar er hægt að æfa badminton, fimleika og glímu svo eitthvað sé nefnt. Guðrún B. Blöndal, formaður íþróttafélagsins Undra er ein þeirra sem fagnar nýju aðstöðunni. Ekki síst bendir hún á að fyrir flest börn í íþróttum í Dölunum þýðir þetta minni tími í akstur daglega.Jóhanna S
Dalamenn vígja íþróttamiðstöð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta