Líklegt er talið að ferðamenn sem fara að Háafossi í Þjórsárdal verði margfalt fleiri á þessu ári en í fyrra, eftir að fossinn birtist í lokaþætti Stranger Things þáttaraðarinnar. Fjöldi þeirra sem gúggluðu fossinn jókst um fimm þúsund prósent eftir þáttinn.Þrátt fyrir vetrarfærð voru þónokkrir ferðamenn við fossinn þegar fréttastofu bar þar að. Öll sögðust þau hafa frétt af fossinum vegna Stranger Things.Í lokaatriði Stranger Things þáttaraðarinnar sést ein aðalpersónan standa við gljúfrið framan við Háafoss og Granna. Meira en 100 milljónir manna horfðu á þáttinn á Netflix.Vinsældir Háafoss í Þjórsárdal hafa stóraukist eftir að fossinn birtist í lokaþætti þáttaraðarinnar Stranger Things. Til stendur að koma upp útsýnispalli og bæta aðstöðuna þar í kring.Eftir að þátturinn var sýndur um á