Á hluthafafundi Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. 26. febrúar var samþykkt að breyta nafni félagsins í Beru hf. Þar var einnig samþykkt að allur rekstur félagsins sem tengist framleiðslu og sölu á drykkjarvörum verði framseldur til dótturfélags, sem heitir Ölgerðin Egill Skallagrímsson. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Beru. Þar segir að breytingarnar taki gildi 1. mars.Nafnið Bera hefur beina skírskotun til sögu Egils Skallagrímssonar en það var nafn móður hans.Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf., nú Bera hf., mun láta af störfum sem forstjóri félagsins og skipta um hlutverk. Hann býður sig fram til stjórnar og gefur kost á sér til stjórnarformennsku móðurfélagsins, Beru.Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn forstjóri Beru. Hann