Sigurbjörn Leifur Þrastarson er staddur í Barein þar sem loftvarnarkerfi landsins keppist við að skjóta niður eldflaugar Írana sem þeir skjóta að landinu eftir að Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran í morgun. Hann segir stöðuna erfiða og að morguninn hafi verið erfiður.„Þetta er búinn að vera svolítið leiðinlegur dagur,“ segir hann. „Ég var úti í búð þegar viðvörunin kom og þrjátíu sekúndum seinna varð sprenging í háloftunum fyrir utan þegar einu flugskeyti var skotið niður.“„Svo eru búnar að vera stanslausar viðvaranir,“ segir Sigurbjörn. Tíðar tilkynningar berist til hans frá stjórnvöldum þar sem ástandið sé ýmist sagt öruggt eða óöruggt.„Þeir hafa sent út þrisvar að hættuástand sé búið og í öll þrjú skiptin urðu nýjar sprengingar svona korteri seinna,“ segir hann. Hann segist vera