Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þúsundum fugla slátrað að óþörfu

Finnskir kjúklingabændur þurftu að slátra á fimmta þúsund fuglum eftir að tilkynnt var um salmonellu. Síðar kom í ljós að sýni voru ranglega greind, en bændurnir sitja uppi með skaðann.Bændum á býli nærri Lappeenranta í suðausturhluta Finnlands var tilkynnt um að salmonella hefði greinst þar sumarið 2024. Þeim var gert að slátra ríflega fjögur þúsund fuglum til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu. Síðar kom hins vegar í ljós að rannsóknarstofan hafði ranglega greint sýnið jákvætt.Í umfjöllun finnska ríkisútvarpsins kemur fram að bændurnir gagnrýna stjórnvöld fyrir að vilja ekki breyta lögum á þann veg að staðfesta þurfi sýni sem greinast jákvæð. Hagsmunasamtök hafa sömuleiðis þrýst á landbúnaðaryfirvöld að jákvæð sýni séu greind aftur.Ráðuneytið segir Evrópureglur koma í veg fyrir slíkt, e
Þúsundum fugla slátrað að óþörfu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta