Framboðslisti Framsóknar fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor var samþykktur í dag í Víkingsheimilinu í Safamýri á tvöföldu kjördæmaþingi Kjördæmasambands Framsóknar í Reykjavík.Fjögur efstu sæti flokksins voru kynnt í byrjun febrúar. Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri, verður áfram oddviti flokksins. Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi er í öðru sæti, Þorvaldur Daníelsson, framkvæmdastjóri Hjólakrafts í þriðja sæti og Halldór Bachman, kynningastjóri Almenna lífeyrissjóðsins í fjórða.„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt með því að fá að leiða listann og fagna nýju fólki sem ætlar að taka þátt í baráttunni. Ég hlakka til þess að hefja kröftuga kosningabaráttu og svara kalli kjósenda um róttækar breytingar á stefnu Reykjavíkurborgar,” er haft efti