Félagar í Samfylkingunni Hafnarfirði samþykktu framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor á félagsfundi flokksins í dag. Varaformaður flokksins leiðir listann áfram.Samfylkingin í Hafnarfirði fékk 29 prósent atkvæða í síðustu sveitarstjórnarkosningunum 2022 og fékk fjóra bæjarfulltrúa kjörna.Guðmundur Árni Stefánsson, varafomaður Samfylkingarinnar, er oddviti flokksins í Hafnarfirði. Hann segir í tilkynningu frá flokknum að jafnaðarmenn eigi traustar rætur í bænum.„Þessi framboðslisti jafnaðarmanna undirstrikar breidd og kraft. Þar er að finna fólk með fjölbreyttan bakgrunn á öllum aldri; fólk með reynslu og þekkingu og einnig nýtt fólk, ekki síst úr röðum unga fólksins, sem getur og mun láta til sín taka. Framboðslistinn er sigurstranglegur og við erum bjartsýn og jákvæð fyrir