Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íslendingur í Kúveit segir sig og fjölskyldu sína örugga

Andri Ottesen býr í Kúveit ásamt konu sinni og þremur börnum. Hann var með börn sín á leikvelli þegar loftvarnarflautur ómuðu um borgina. Hann segir að hann og fjölskyldan upplifi sig örugg þrátt fyrir að Íran hafi skotið eldflaugum að Kúveit-borg, höfuðborg landsins.Hann segir að herstöðvar Bandaríkjamanna, sem árásirnar beindust að, séu staðsettar töluvert fyrir utan borgina. Engu að síður heyri þau sprengingar í fjarska.Í borginni séu fleiri Íslendingar, þar á meðal Aron Kristjánsson, sem þjálfar landslið Kúveit í handbolta. Andri segir að allir séu öruggir og fremur rólegir yfir ástandinu. Flugvellinum í Kúveit hafi verið lokað og því ómögulegt að yfirgefa landið. Andri og fjölskylda hans hafa þó ekki í hyggju að fara þaðan vegna átakanna.
Íslendingur í Kúveit segir sig og fjölskyldu sína örugga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta